Dagskrá í janúar
Við óskum eftir að nemendur komi í skólann klæddir til útiveru. Nú í haust hefur rignt mikið og margir nemendur hafa verið illa klæddir og ekki geta farið út eða komið inn rennandi blautir.
Til foreldra akstursbarna. Það er brýnt að foreldrar láti bílstjóra vita ef börn þeirra eiga ekki að fara með bílunum.
Skólaþjónustan er búin að ráða til sín námsráðgjafa. Hún heitir Árný Þóra Ármannsdóttir og fáum við hana til okkar einu sinni í mánuði með öðru skólaþjónustufólki. Nemendur og foreldrar geta óskað eftir viðtali við Árnýju. Hún er með netfangið arnythora@nordurthing.is.








