9. Maí 2012
Hreinsunardagur
7. Maí 2012
Kynningafundir
8. maí, kynningafundir
Á morgun kl. 17 verður kynning á niðurstöðum úr könnun sem gerð var meðal nemenda í mars um líðan og fleira.
Í framhald af þeim fundi ætlum við að hafa kynningu á skólabúðum fyrir 6.-8. bekk og skólaferðalagi 9.-10. bekkjar núna í vor. Þessar kynningar eru bara ætlaðar foreldrum.
26. Apríl 2012
Fræðsluskjálfti
Þessi ferð tóks mjög vel og voru nemendur sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.
Við þökkum Skjálftasetrinu og Gljúfrastofu kærlega fyrir þetta góða boð. Hægt er að sjá myndir undir hlekknum myndir úr skólastarfinu
16. Apríl 2012
Skólahreysti og Laugamót
Fimmtudaginn 15.mars var fjórum elstu bekkjunum smalað uppí rútu og keyrt alla leið á Egilsstaði til að taka þátt í Skólahreysti. Lið skólans að þessu sinni var skipað af þeim Pétri Ingva Gunnarssyni, Fannari Rafni Gíslasyni, Sonju Rut Stefánsdóttur og Mörtu Sif Baldvinsdóttur.
Nemendur úr 8-10.bekk hafa í vetur unnið að því að undirbúa sig fyrir Skólahreysti í íþróttavalinu sem er einn tvöfaldur tími í viku. Í þessum tímum er reynt að byggja upp þol, styrk og almennt hreysti, bæði í þessum greinum sem keppt er í í Skólahreysti en einnig með skemmtilegum leikjum og mismunandi íþróttagreinum. Mjög ánægjulegt var að sjá að næstum allri nemendur í þessum bekkjum völdu íþróttavalið.
Nemendurnir fjórir sem kepptu fyrir hönd skólans stóðu sig mjög vel og gerðu sitt allra besta í keppninni, þó stress hafi sett smá strik í reikninginn! Skólinn okkar endaði í 8-9 sæti af 12 skólum sem kepptu í þessum riðli.
Föstudaginn 16.mars var krökkunum aftur smalað uppí rútu og í þetta skiptið var haldið niður í Lauga til að að taka þátt í Laugamótinu. Þar var keppt í frjálsum, þrautabraut, körfubolta og dodgeball. Allir nemendur úr 7-10.bekk tóku þátt. Auðvitað stóðu þau sig alveg eins og hetjur og voru til fyrirmyndar, bæði innan vallar og utan. Reykjahlíðarskóli lenti í öðru sæti, en örfáum stigum munaði á okkur og Litlu laugaskóla sem var í fyrsta sæti. Hægt er að sjá myndir undir hlekknum myndir úr skólastarfinu.
27. Mars 2012
Lífshlaupið
Lífshlaupið var haldið fyrir nemendur í grunnskólum fyrstu tvær vikurnar í febrúar og tóku krakkarnir okkar þátt í því. Kennarar voru duglegir að hvetja börnin til að hreyfa sig og á hverjum morgni skiluðu þau dagatali til íþróttakennara þar sem þau voru búin að fylla inn hreyfingu dagana á undan og það var svo skráð á heimasíðu Lífshlaupsins. Þrátt fyrir veikindi og forföll nemenda þessar tvær vikur stóðu þau sig öll sérlega vel og vonum við að þau hafi áttað sig á mikilvægi reglulegrar hreyfingar og hafi haldið áfram að reyna að hreyfa sig í að minnsta kosti eina klukkustund á dag. Ekki má gleyma því að foreldrar og eldri systkini spila stórt hlutverk í að hvetja börnin áfram og kenna þeim heilbrigðar lífsvenjur! Verum góðar fyrirmyndir!
Þess má geta að nemendur skólans fengu viðurkenningu í Lífshlaupinu. Þau voru í þriðja sæti í hvatningaleiknum fyrir flesta daga. Hægt er að sjá myndir af hópnum með viðurkenningarskjöldinn á hleknum myndir úr skólastarfinu.








