Skútustaðahreppur
Fréttir
6.10.2011
25. fundargerð sveitarstjórnar
Fyrirspurn um kaldavatnstank á Háuhlíð:
Í vettvangsferð fulltrúa G listans á dögnum kom í ljós að svo virðist sem ekki sé ennþá búið að taka í notkun vatnstankinn sem var byggður árið 2010. Vinnusvæði er ófrágengð og blasir við sem alvarlegt umhverfislýti víða að í sveitinni. Bygging þessa tanks var erfið fæðing, tímafrekt og dýrt. Hver var heildarkostnaður við byggingu tanksins og hvenær er áætlað að hann verði tekinn í notkun? Hver ber ábyrgð á því að málum er svo komið sem raun ber vitni?
Svar meirihluta:
Ljúka átti framkvæmdum við kaldavatnstankinn s.l. haust en m.a. af veðurfarslegum ástæðum stóðst það ekki. Þá var heldur ekki búið að taka ákvörðun um hvernig farið væri með yfirfallið af tankinum. Þegar sumra tók á ný var vinna við tankinn ekki sett í forgang þar sem ekki var um neyðarástand að ræða og starfsmenn hreppsins hafa gripið í það verk þegar ekki þurfti að sinna öðru sem var meira aðkallandi. Vatnstankurinn sjálfur er tilbúinn en eftir er að grafa fyrir yfirfalli og tengja vatnslögnina í hann. Áætlað er að tankurinn verði tekinn í notkun allra næstu daga.
Ekki liggur fyrir endanlegur kostnaður vegna framkvæmda við nýjan kaldavatnstank sveitarfélagsins þar sem verkinu er ekki að fullu lokið. Tilboð Trésmiðjunnar Rein hljóðaði uppá kr. 24.336.023,- Þegar hafa verið greiddar kr. 21.497.551,-
Það er með þetta verk eins og önnur á vegum sveitarfélagsins að ábyrgðin liggur hjá sveitarstjóra.
Ekki er hægt að fallast á þá fullyrðingu sem fram kemur í fyrirspurn G-listans að vinnusvæði umhverfis tankinn blasi við sem alvarlegt umhverfislýti víða að í sveitinni, hins vegar má sjá í malarbinginn sunnan við tankinn sé eftir því leitað.
Fyrirspurn um skólamál:
Hver er þróun nemendafjölda í grunnskóla, tónlistarskóla og leikskóla í Mývatnssveit frá árinu 2004 til 2011? Hver er starfsmannafjöldi í sömu skólum þessi ár? Hver er rekstarkostnaður við skólana þessu sömu ár í krónum og sem hlutfall af heildarráðstöfunafé sveitarfélagsins?
Svar meirihluta:
Þróun nemendafjölda í grunnskóla stöðugildi tónlistarskóla stöðugildi
2004 - 2005 82 14,8690 45/40 2,6181
2005 - 2006 75 13,5089 40/40 2,5940
2006 - 2007 74 14,8423 24/29 1,5000
2007 - 2008 70 15,8960 29/38 1,7682
2008 - 2009 58 15,5539 31/32 1,9310
2009 - 2010 47 13,5550 33/31 1,8688
2010 - 2011 48 12,6828 24/24 1,5553
2011 - 2012 43 11,8776 1,5000
Þróun nemendafjölda í leikskóla/barnagildi stöðugildi
2004 - 2005 21 24,3 3,0144
2005 - 2006 17 20,9 3,4475
2006 - 2007 13 16,1 3,2426
2007 - 2008 11 13,5 3,1468
2008 - 2009 12 15,4 3,0130
2009 - 2010 8 9,5 2,9120
2010 - 2011 10 11,6 4,2135
2011 - 2012 15 21,4 4,3063
Ár fræðslumál millj.kr. hlutfall af skatttekjum
2004 97,767 57,4%
2005 97,243 58,9%
2006 101,854 52,5%
2007 109,361 47,2%
2008 120,369 50,6%
2009 126,492 54,3%
2010 125,609 54,4%
Fyrirspurn um alþjóðlegt samstarf:
Á heimasíðu Skútustaðahrepps er lykkja inn á Christmas Cities sem mun vera einhverskonar alþjóðleg keðja borga/svæða um jólahald. Hvað er Skútustaðahreppur búinn að taka lengi þátt í þessu samstarfi, hvað kostar það á ári og hver er fjárhagslegur og félagslegur ávinningur af starfinu?
Svar meirihluta:
Við lokun Kísiliðjunnar 2004 lagði Iðnaðarráðuneytið f.h. ríkisins fram nokkurt fé til eflingar atvinnulífs í sveitarfélaginu. Upp úr því er lagt af stað með þróunarverkefni sem hét Snow Magic. Að því verkefni komu líka sveitarfélagið og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga ásamt þátttakendum frá Svíþjóð og Finnlandi. Verkefnishugmyndin var mótuð í umsókn um fjárhagsstuðning í Northern Periphery Programme (NPP) Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Markmið íslenska hlutans var að efla atvinnulíf í Mývatnssveit, sérstaklega yfir vetrartímann með áherslu á ferðaþjónustu og menningu. Formlega lauk Snow Magic verkefninu sem NPP verkefni haustið 2007 en út úr því spratt m.a. aðventusamstarfið Christmas City. Það verkefni hefur verið starfrækt síðan 2006. Ekkert árgjald er greitt en greiddur ferðakostnaður fyrir tvo, kr. 150-250 þús. á sameignlegan fund einu sinni á ári og skiptast aðilar á um að halda fundinn. Markmiðið hlýtur að vera að læra af örðum , víkka sjóndeildarhringinn og kynning á verkefninu og Mývatnssveit m.a. á ferðakaupstefnum sem viðkomandi aðilar sækja. Ekki er hægt að reikna út beinan fjárhagslegan ávinning af þessu verkefni frekar en öðrum sambærilegum samstarfsverkefnum.
Leit
Mynd












