Beint á leiðarkerfi vefsins

Skútustaðahreppur

Fréttir

26.5.2010

Auglýsing um skipulag í Skútustaðahreppi

Sveitarstjórn Skútustaðahrepps  auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi á athafnasvæði Hlíðar ferðaþjónustu, samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem tjaldsvæði í gildandi aðalskipulagi.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.Tillagan liggur frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn frá og með miðvikudeginum 26. maí til og með miðvikudagsins 23. júní 2010. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 7. júlí 2010.

Deiliskipulagstillagan er einnig aðgengileg hér. Og greinargerð með deiliskipulagstillögunni er aðgengileg hér.

Skila skal athugasemdum á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn.  Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

 

                                                                                  Mývatnssveit 19. maí 2010

                                                                                  Sveitarstjóri Skútustaðahrepps

Viðburðir

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Skoða alla viðburði



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré English Deutsch

Mynd