Skútustaðahreppur
Fréttir
26.8.2009
Aukaúthlutun Menningarráðs
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
- Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðausturland
- Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna
- Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
- Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista
- Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
Umsóknarfrestur er til og með 18. september. Úthlutun fer fram í október.
Hámarksstyrkur í aukaúthlutun er 400.000.- Verkefni sem fá úthlutað í aukaúthlutun þurfa að fara fram á tímabilinu október 2009 - janúar 2010.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is
Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþingi vegna aukaúthlutunar á menningarstyrkjum 2009. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:
Akureyri 28. ágúst kl. 9-12 og 13-16 á skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Húsavík 1. september kl. 11-12 í Menningarmiðstöð Þingeyinga
Kópasker 3 . september kl. 11-12 á skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn 3. september kl. 13-14 á skrifstofu Norðurþings
Langanesbyggð 4. september kl. 10-11 á skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn
Laugum 9. september kl. 10-11 á skrifstofu Þingeyjarsveitar
Mývatnssveit 9. september kl. 14-15 í Mývatnsstofu
Dalvík 15. september kl. 9.30-10.30 Ráðhúsinu Dalvík
Ólafsfjörður 15. september kl. 11.30 -12.30 Bæjarskrifstofunni á Ólafsfirði
Siglufjörður 15. september kl. 14-15 Bæjarskrifstofunni á Siglufirði
Akureyri 16. og 17. september kl. 13-16 á skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Leit
Mynd












