Skútustaðahreppur
Lúdentar og Þrengslaborgir

Lúdentarborgir eru gígaröð austur af Mývatni. Þær eru framhald af Þrengslaborgum og hafa gosið samtímis þeim. Borgirnar draga nafn af sprengigígnum Lúdent sem er skammt norðaustan við þær. Fyrir tunglferð Appolóferjunnar 1969 voru geimfararnir m.a. þjálfaðir í Lúdentarborgum.
Þrengslaborgir eru gígaröð norður frá Bláfjalli. Hraunið þaðan, Laxárhraun yngra, hefur runnið yfir miðhluta Mývatnssveitar, Syðriflóa, niður Laxárdalog langt norður eftir Aðaldal. Hraunið er talið um 2000 ára gamalt, jafn gamalt Mývatni í núverandi mynd.
Leit
Mynd












